Gilwell 2026-2027
staðsetning
tímasetning
verð
aldursbil
Róverskátar (19-25 ára), Vættaskátar (26+ ára), Stjórnir
skráningafrestur
Gilwell er tilvalið tækifæri fyrir skáta, 20 ára og eldri, að upplifa 10 daga skátaævintýri sem inniheldur leiðtogaþjálfun og uppbyggingu einstaklingsins.
Á Gilwell fá þátttakendur að efla og öðlast nýja færni í ólíkum hlutverkum innan skátahreyfingarinnar sem mun einnig koma að góðum notum í þeirra daglega lífi.
Gilwell leiðtogaþjálfunin tekur ár en er skipt upp í þrjár lotur
1. hluti – Skátinn
Í fyrsta hluta er athyglinni beint að skátanum sjálfum og unnið með sjálfseflingu, framkomu og gildum einstaklings í og utan skátastarfs
2. hluti- Flokkurinn - 13. maí – 17. maí 2027.
Í öðrum hluta er flokkastarf í forgrunni. Á þessu skrefi munu flokkarnir reisa tjaldbúð sem þeir búa og starfa í með sínum flokki og glíma við ögrandi verkefni sem miða að því að efla hópinn og auka færni í útivist og tjaldbúðalífi.
3. hluti- Leiðtoginn - 8. – 10. október 2027.
Í þriðja hlutanum vinnum við með leiðtogafræðin og hæfni hvers og eins.
Nánari upplýsingar um verð og skráningu verða gerðar aðgengilegar á þessari síðu þegar nær dregur.


